|
|
28.07.2008 16:02:47 / Ólöf Ósk
Innilega til hamingju elsku Sólveig mín með þá litlu! (kom í heiminn 26.07 200  sjá almartristan.barnaland.is  Þú átt fallegustu börn á landinu!  ---Ólöf Ósk---
»
13.01.2008 21:45:24 / Lilja
Úff..alltaf þurfa helgarnar að vera jafn fljótar að líða...Fyrsta skólavikan liðin og allir áfangarnir komnir á gott skrið..ekkert hangs lengur! Helgin var samt bara mjög vel heppnuð í alla staði, og ég náði að gera alveg helling og samt njóta lífsins Byrjaði á föstudagseftirmiðdaginn að vinna sumir myndu nú kannski ekki gleðjast svo mikið yfir því, en ég elska það! Fékk vinnu á sambýli og það er algjört æði! Besta vinna sem ég hef haft og sé mikið eftir því að hafa ekki sótt um fyrr...Krakkarnir eru algjör æði og líka skemmtilegt samstarfsfólk, svo það sameinast allt í eitt! Svo eru föstudagarnir skemmtilegustu dagarnir, því þá eru allir í stuði, og svo góður matur og það mega allir fá smá gos og nammi ég gæti sko talað endalaust um þessa vinnu, en læt þetta gott heita í bili.. Svo fór ég á smá rúnt með Möggu og vinkonum eftir vinnu þar sem rúntað var um öll helstu svæði höfuðborgarsvæðisins Laugardagurinn var mjög kósý, fór í Kringluna þar sem ég hitti bæði Söndru og Stínu, fór svo út að borða og heim með Söndru og við fórum í Buzz leikinn, algjör snilld Svo var djammað fram á nótt með Steinunni og Herborgu!! Mikið dansað og spjallað og smávegis drukkið, ég fékk meira að segja frían drykk á celtic En í dag aftur á móti hitti ég Sólveigu og við vorum að plana fyrsta fund hins nýstofnaða saumaklúbbs okkar sem verður næstkomandi fimmtudag, heima hjá Sólveigu. Við munum gera okkar besta til að standa undir væntingum um gómsætar veitingar, og vonumst til að sjá ykkur allar!! Nú þarf ég að fara að sökkva mér í heimadæmi, vona bara að ég drukkni ekki, en þið vitið þá hvar mig er að finna -Lilja Dögg-
»
30.12.2007 20:59:04 / Kristín
Vá ég er að drepast í maganum af öllu jólaátinu. Þetta er ekki hollt. En vá árið 2007 er að ljúka!! Og 2008 er að taka við. Hvað á eftir að gerast á næsta ári. Ég er nokkuð bjartsýn sko. En hvað hefur staðið upp úr á árinu sem er að líða. Hjá mér er það örugglega að Guðný flutti í bæinn, ég kaus í fyrsta skiptið og ég varð 19 ára. Held að ekkertr fleira merkilelegt hafi gerst. Allavega ekkert sem vert er að minnast hér. En já ég hlakka til áramótanna. Ég ætla að djamma og skemmta mér. Ég er að reyna að fá miða á Broadway en það gengur eitthvað brösulega þar sem helv%#&* kerfið virkar ekki þannig að ég get ekki keypt miða á netinu, þannig að ég verð að fara niðreftir á morgun og vonast eftir að þeir eiga miða. Veit einhver hvenær miðasalan opnar á broaway. Ljóta broadway. Ok ég er smá pirruð. En hefur einhver gert einhver áramótaheit. Eru það sama og venjulega. Grennast, ekki drekka eins mikið gos, ekki borða svona mikið nammi, djamma minna, djamma meira? Ég veit ekkert hvaða áramóta heit ég á að strengja. Langar til að gera eitthvað sem ég veit að ég get staðið við, eða kannski maður ætti bara alveg að sleppa þessu. Nenni ekki að blogga meira þannig að ég óska ykkur bara gleðilegrar jóla og skemmtið ykkur vel um áramótin!!!! -Kristín- (p.s ég fíla nýja bakgruninn) 
»
26.12.2007 01:48:10 / Lilja
Gleðileg jól allir saman !! Já, jólin eru gengin í garð með allri sinni hamingju og gleði!! þrátt fyrir að þau séu ekki enn búin, er samt farið að bíða eftir þeim næstu hér á bæ, minnsta heimasætan spurði mömmu í gær um ellefu leitið, hvenær næstu jól kæmu svo...þarf varla að minnast á að þá voru pakkarnir horfnir undan trénu Ég fékk margt hagnýtt og skemmtilegt í jólagjöf og jóladagurinn minn var mjög kósý, messa og svo kökuboð hjá ömmu, namminamm!! Svo horfði eldri partur familíunnar á köld slóð áðan á meðan yngri hlutinn horfði á grænleitt skrímsli í imbanum og hafði gaman að
Annars vildi ég bara láta heyra í mér, vona að þið eigið góð jól og áramót, og borðið nóg af góðgæti, jólin eru til þess Jólakveðja, Lilja
»
21.12.2007 09:38:23 / Sólveig

SJÁUMST Á EFTIR
»
09.12.2007 10:43:04 / Sólveig
Rosalega líður þetta hratt! Finnst ég nýbúin að setja inn blogg þar sem voru akkúrat 8 vikur til jóla...Ótrúlegt að það séu bara 15 dagar í jólin, annar í aðventu í dag. ÉG ER BÚIN Í ÖLLU NÚNA...fékk 8 í lokaeinkunn í sögu, bara mjög sátt við það  Vá hvað ég dýrka vinnuna mína, ohh það er svoooo gaman að fara í vinnuna. Er samt fáránlega þreytt þegar ég kem heim, sofna næstum í tröppunum heima Búin að vera hálf slöpp þessa vikuna, eins gott að hrista það af sér fyrir útskriftina...afþakka veikindi takk! Hlakka svo til að sjá ykkur skvísur á litlu jólunum hjá Steinunni ofursætu... 
Gangi ykkur vel þið sem eigið eftir að taka próf.... *JÓLA-Sólveig*
»
23.11.2007 09:25:08 / Lilja
»
29.10.2007 15:23:59 / Sólveig

Við Steinunn vorum að tala um hvað það er skuggalega lítið eftir af önninni...við förum að halda uppá litlu jólin okkar von bráðar! Við dauðsáum eftir að hafa farið að tala um litlu jólin því við getum varla beðið  Við þurfum samt ekki að bíða svo lengi, það verða komin jól áður en við vitum af...í dag eru akkúrat 8 vikur til jóla! Rosalega verður jólalegt þegar snjórinn kemur! Vildi að það væri föstudagur svo ég gæti farið með guttann út að renna án þess að fá samviskubit yfir heimalærdómi Er að pæla í að kíkja út í smá stund...er búin að vera svo dugleg á bókasafninu síðan hádegishléið kláraðist. Sorrý, stóðst ekki mátið...vá hvað ég hlakka til jólanna! 
Hvenær eruð þið annars búnar í prófum stelpur?
»
11.10.2007 21:40:08 / Lilja
Langaði bara til að óska ykkur gleðilegs vetrarfrís Góða
skemmtun allar saman og njótið frísins, heima sem heiman Ég mun
aldeilis sletta úr klaufunum í Barcelona borg
Sjáumst á þriðjudaginn!
»
09.10.2007 22:54:38 / Sólveig
Vá, ég svíf hér um af hamingju! Var í þessu að bóka draumaferðina mína til Nýja-Sjálands og hringja í Helguna mína til að láta hana vita af staðfestum komudegi! Vá, held að við séum báðar að missa okkur úr spenningi...langar 15 vikur í brottför en nóg að gera þangað til hjá okkur báðum sem heldur okkur uppteknum. Ég trúi þessu varla ennþá, þetta er draumur draumanna! 21.janúar 2008 er dagurinn! Verð þá kominn til Helgu minnar 23.janúar 
»
23.09.2007 15:15:18 / Lilja
jájá, tíminn líður alltaf framhjá okkur, ýmist hægt eða hratt...Einmitt núna er hann frekar lengi að líða Ég er nefnilega stödd í vinnunni og það er ekkert rosalega mikið að gera hjá mér þessa stundina, frekar en síðustu 3 klukkutímana Vinnan er samt rosalega skemmtileg á meðan e-ð er að gera og ég er mjög sátt við hana Ég fékk bara ekkert alltof langan svefn þar sem Stína Stuð og Gugga gella héldu upp á mjög svo atburðaríkt afmæli í gær og það stóð langt frameftir nóttu þar sem stórstjarnan Herbilja kom fram við mikinn fögnuð viðstaddra Geri samt ráð fyrir að þreytan sem kom fram hjá mér hafi verið mun skárri tilfinning en mér finnst líklegt að sumir hafi fundið fyrir í morgun... En ég bíð alla vega spennt eftir að komast heim og sofa eftir u.þ.b. 5 klst! Reyndar þegar ég hugsa um það þá er það lengri tími en ég náði að sofa í nótt Stór dagur eftir 2 daga, ég geri væntingar um að þið vitið um hvað ég er að tala Veit samt ekki alveg hvernig verður haldið upp á þann stórmerka atburð, herbergið mitt bíður ekki alveg upp á að bjóða mörgum í heimsókn í einu, en ég reyni að gera gott úr hlutunum Styttist í Barcelona og ég stóð í ströngu að selja öllum ættingjum mínum, náskyldum eða fjarskyldum, mjög svo hentugan bökunarpappír sem hefur þann kost að hann má nota aftur og aftur og aftur og aftur! Honum er bara skellt í uppþvottavélina eða strokið af honum og voilá! Eins og nýr Mjög svo umhverfisvænt Svo er hann 100% non stick svo ekkert festist við hann og það er alveg óþarfi að nota hvers kyns olíu! Ég valdi einmitt helgina til að koma þessu í framkvæmd því þetta er ein af þeim helgum sem allir afkomendur ömmu og afa koma saman í sveitinni og þeir sem hafa aldur til fara að elta rollur Þetta bar svo mikinn árangur að mér tókst næstum að selja birgðirnar sem ég fór með austur, og amma komst svo að orði að henni hefði ekki dottið í hug að ég væri svona mikil sölukona(þegar ég var að byrja að þylja upp kosti vörunnar í 4. sinn) svo ég seldi henni 2 pakkningar En ef þið hafið áhuga á að komast í tæri við þessa frábæru vöru (sem ég efast ekki um að þið gerið þar sem að margir listakokkar og bakarar eru í hópnum) þá þarf ekki annað en að hafa við mig samband og ég kem henni til þín á kostakjörum sem þú getur ekki látið fram hjá þér fara! ég kveð þá í sinni, við verðum bara í bandi -Lilja-
»
10.09.2007 20:14:45 / Sólveig
»
04.09.2007 20:38:13 / Kristín
Hvað er að gerast með þessa síðu okkar?? Er hún nokkuð að deyja? Vona ekki...við verðum að vera duglegar stelpur, hrista slenið af okkur og koma okkur í blogg gírinn!! Ég segi ÁFRAM STELPUR!!! Anyways...hef ekkert betra að gera. En ég og Steinunn ætlum að kaupa okkur námsmannakort í baðhúsinu á 20.000 kr. þá höfum við aðgang að afró dansnámskeiði, sweet, það er ekki mikið, 20.000 kr. fyrir ræktina, dansnámskeið og ég held að við höfum þá aðgang að Sporthúsinu í Kópavogi líka, þannig að ég og Guðný getum skroppið saman einhvern daginn og púlað. Ég er samt með svo miklar harðsperrur eftir leikfimina í gær, er í lyftingaáfanga...með Ólöfu ooooog SIGRÚNU, shit hvað ég verð mikil písl við hliðiná þeim. Ég verð bara að harka af mér, verð geðveikt mössuð eftir önnina Ég er að fara á Chris Lake á föstudaginn, nenenene búbú, ég, Guðny, þ.e.a.s ef hún verður ekki veik stelpan og Gugga ætlum að skella okkur. Síðan er afmæli hjá Ólöfu á laugardaginn, hlakka til Ég ætla líka að kíkja á Guðnýju í MK á morgun Nenni samt ekki að blogga meira, ég bloggaði svo mikið á stinamars.bloggar.is Vi ses í skulen på morgen!! -Kristín-
»
24.08.2007 19:35:55 / Steinunn
Hvað er að vera ég? Það að vera ég er að vera kúl Við hvurslags erum svo kúl að vera með blogg! Ég er kúl, ég blogga sjálf! Iðunn og Stína eru líka kúl því þær blogga líka sjálfar. Sigrún, Ólöf. Herborg, Kristín, Lilja, Kolbrún og ég erum líka kúl því við erum með myspace.. Sólveig er kúl því hún er með barnalandssíðu. Ég er vinkona vinkona minna, því er ég kúl. Lifi kúlið! 
Djöfull myndi ég rústa þessum ljóðum aftan á mjólkurfernunum.
»
21.08.2007 18:01:14 / Sólveig
Trúi varla að skólinn byrji á morgun! Vona að þið hafið allar fengið fínar stundatöflur Er bara sátt við mína...Er samt engan veginn í bloggstuði vildi bara láta vita af niðurtalningunni sem ég var að setja inn, hún er ekki af verri endanum! Hún er fyrir neðan skoðunarkönnunina. Sjáumst á morgun...kem reyndar ekki fyrr en í hádeginu, byrja 12.40
»
Síður: 1 2 3 ... 11
|
Niðurtalning í útskrift!
Fyrir 1511 dögum
Sólveig fer til Nýja-Sjálands!!!
Fyrir 1480 dögum
|